Náttúran í nálægð

Það má segja að í bakgarði Þorraholtsins sé Vífilsstaðavöllur, golfvöllur Kópavogs og Garðabæjar ásamt Miðgarði, fjölnota íþróttahús búið knattspyrnuvelli í fullri stærð og klifurvegg innanhúss auk teygju- og upphitunaraðstöðu.

Þá kemur Vífilstaðavatn en þar stunda Garðbæingar útiveru allan ársins hring. Heiðmörkin er síðan uppáhaldsstaður margra með sínum óteljandi gönguleiðum og skógarstígum. Þar er Golfklúbburinn Oddur með 18 holu völl kallaður Urriðavöllur. Að auki eru tveir aðrir golfvellir í bæjarfélaginu.

Stjarnan er síðan aðal íþróttafélag Garðabæjar og hefur getið sér gott orð í boltaíþróttum en þar eru líka deildir í fimleikum, sundi, lyftingum og almennum íþróttum.

Garðabær er friðsæll bær með nálægð við náttúru, fjölskylduvænt andrúmsloft og góða tengingu við höfuðborgarsvæðið, sem gerir bæinn vinsælan stað til að búa á.

Þorraholt

Verslun og þjónusta

Stutt er í verslun og má nefna í því tilliti Smáralind, lágvöruverslanirnar Prís og Krónan og svo auðvitað verslanirnar á Garðatorgi. Þá er Hagkaup í Garðabæ opið allan sólarhringinn.

Bærinn leggur áherslu á að bjóða upp á fyrsta flokks menntun og íþróttaaðstöðu. Skólarnir eru góðir og þá er einnig framhaldskóli í bærjarfélaginu.

Garðabær er reyndar þekktur fyrir að vera með mjög gott og rólegt samfélag og bærinn þykir öruggur og með lága glæpatíðni.

Þorraholt
Þorraholt

Menningarstarfsemi í Garðabæ

Á bókasafninu eru ýmsir viðburðir og sérstaklega hlúð að börnum og foreldrum. En fastur liður í menningarlífnu eruð meðal annars Kvennahlaupið sem fer fram á kvenréttindadeginum 19. Júní. Á vorin er svo Jazzþorpið í Garðabæ þar sem Garðatorg iðar af sölubásum og tónleikum. Í bænum er Hönnunarsafn Íslands ásamt litla og sæta safninu að Krók Garðholti.

Þorraholt

Kort

Dæmi um þjónustu og fyrirtæki sem eru í næsta nágrenni:

Skólar

  1. Hofstaðaskóli
  2. Fjölbrautarskólinn
  3. Leikskólinn Akrar
  4. Leikskólinn Hæðaból
  5. Barnaskóli Hjallatefnunnar
  6. Leikskólinn Sunnuhvoll
  7. Leikskólinn Lundaból
  8. Kirkjuból Leikskóli
  9. Tólistarskóli Garðabæjar

Afþreying

  1. Ærslabelgur
  2. Víflilsstaðavöllur
  3. Vífilstaðavatn
  4. Frisbígolf Vífilsstöðum
  5. Salalaug
  6. Hönnunarsafnið
  7. Hestamannafélagið Sprettur

Veitingar

  1. Hraðlestin
  2. Italiano Pizzeria
  3. Flatey Pizza
  4. Dominos Pizza
  5. Mathús Garðabæjar
  6. Te og kaffi
  7. Ísbúð Vestubæjar Bæjalind
  8. Íslenska flatbakan

Verslanir

  1. Smáralind
  2. Krónan
  3. Bónus
  4. Elkó
  5. Prís
  6. Ego dekor

Þjónusta

  1. Lindin – bílaþvottastöð
  2. Ásgarður íþróttamiðstöð
  3. Vífilshöll
  4. Dýraspítalinn Garðabæ
  5. Heilsugæslan Garðabæ
  6. Vídalínskirkja